STOFAN

Um stofuna

Munn- og kjálkaskurðlæknastofan hefur verið starfrækt frá árinu 2008.   

Á stofunni starfa tveir sérfræðingar í kjálkaskurðlækningum sem sinna öllum aðgerðum er snúa að munnholi og kjálkum. Við sérhæfum okkur í ísetningu tannplanta (implanta), endajaxaaðgerðum og öðrum tannúrdráttum. Einnig kjálkaaðgerðum í tengslum við tannréttingar og ýmsu öðru.   

Á stofunni starfar einnig öflugur hópur hjúkrunarfræðinga, tanntækna og annars aðstoðarfólks. Stofan er staðsett í Bæjarlind 12 í Kópavogi. Við erum í samstarfi við Handlæknastöðina í Glæsibæ og sinnum þar sjúklingum sem þurfa aðgerðir í svæfingu.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi aðgerðir, meðferðir eða annað hafið þá endilega samband. Við tökum vel á móti þér og veitum góð ráð. 

Rekstaraðili stofunnar er Breiðaklöpp slf. kt. 710111-1380.
Stofan hefur starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Kópavogs.

Starfsfólk

Július Helgi Schopka

Júlíus Helgi Schopka

tannlæknir, munn- og kjálkaskurðlæknir

Júlíus útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 1998.  Hann lauk sérfræðinámi í munn- og kjálkaskurðlækningum frá Háskólasjúkrahúsinu í Árósum árið 2008.

Júlíus var sérfræðingur við Háls-, nef og eyrnadeild Landspítala í Fossvogi árin 2008 til 2022. Hann var einnig lektor við Tannlæknadeild Háskóla Íslands á árunum 2013 -2018 og hafði þá áður verið stundakennari við deildina frá árinu 2009. Hann sá um klíníska og fræðilega kennslu 5. og 6. árs tannlæknanema auk þess að stunda rannsóknir. Í dag starfar Júlíus í fullu starfi á stofunni í Bæjarlind.

Hann er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands,  Félagi munn- og kjálkaskurðlækna á Ísandi (FMKSÍ) , Félagi munn- og kjálkaskurðlækna í Skandinavíu (SFOMK)  og Alþjóðasamtökum munn- og kjálkaskurðlækna (IAOMS).  Hann hefur ritað greinar í fræðitímarit og flutt erindi um sérgrein sína á ráðstefnum bæði innanlands og utan.

Július Helgi Schopka

Gunnar Ingi Jóhannsson

tannlæknir, munn- og kjálkaskurðlæknir

Gunnar útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 2008 og lauk sérfræðinámi í munn- og kjálkaskurðlækningum frá Háskólasjúkrahúsinu í Álaborg árið 2018.

Gunnar fékk sérfræðileyfi í munn- og kjálkasskurðlækningum árið 2018. Auk þess að starfa á stofunni í Bæjarlind gegnir Gunnar stöðu sérfræðings við Háls-, nef og eyrnadeild Landspítala í Fossvogi. Hann hafði stöðu aðjúnkts við Tannlæknadeild Háskóla Íslands árin 2018 - 2021 og sinnti þá fræðilegri og verklegri kennslu 5. og 6. árs tannlæknanema.

Hann er meðlimur í Tannlæknafélagi Íslands, Félagi munn- og kjálkaskurðlækna á Íslandi (FMKSÍ) og Félagi munn- og kjálkaskurðlækna í Skandinavíu (SFOMK).

Helga Gunnarsdótir

Helga Gunnarsdóttir

Hjúkrunarfræðingur, framkvæmdastjóri.

Helga útskrifaðist frá Hjúkrunarfræðideild HÍ árið 2009. Eftir útskrift starfaði hún á Landspítalanum í Fossvogi, deild A-4 til ársins 2012 þar sem hún annaðist meðal annars sjúklinga sem verið höfðu í kjálkaaðgerðum á spítalanum. Hún þekkir því vel til þessa sjúklingahóps.
Hefur unnið á stofunni frá 2012.

Gerður Ósk Guðmundsdóttir

Tanntæknir

Gerður útskrifaðist af Tanntæknabraut Fjölbrautarskólans í Ármúla vorið 2016 hóf störf á stofunni strax að lokinni útskrift.

Arta Ferati

Tanntæknir

Arta hóf störf hjá Munn- og kjálkaskurðlæknastofunni strax að lokinni útskrift úr tanntæknanámi vorið 2021

Kristný Pétursdóttir

Hjúkrunarfræðingur

Kristný hóf störf á stofunni haustið 2022. Hún lauk námi í hjúkrunarfræði árið 2020 og starfaði eftir útskrift á hjarta- og lungnadeild Landspítalans.

Selma Ríkey Vignisdóttir

Aðstoðarmaður tannlæknis

Selma hóf störf á stofunni haustið 2022.

Staðsetning

Stofan er staðsett í sama húsi og húsgagnaverslunin Ego Decor
Stofan er á 2. hæð og aðgengi er gott, lyfta er í húsinu.

Bæjarlind 12
201 Kópavogi