PRF Meðferð

PRF stendur fyrir Platelet-Rich Fibrin eða blóðflagnaríkt fíbrín.

Hvað er PRF?

PRF stendur fyrir Platelet-Rich Fibrin eða blóðflagnaríkt fíbrín. Um er að ræða náttúrulega meðferð sem unnin er úr þínu eigin blóði og nýtir eigin græðslugetu líkamans til að endurnýja húð og vefi á öruggan og áhrifaríkan hátt.
Við tökum lítið magn af blóði sem er sett í skilvindu þannig þar sem hluti blóðsins er aðskilin og verður sérstaklega ríkur af blóðflögum, vaxtarþáttum og boðefnum. Þessi efni eru eigin efni líkamans „græðslu kraftar“ sem örva frumuvöxt, bæta húðgæði og styðja við náttúrulega endurnýjun.
PRF getur innihaldið allt að fimm- til tífalt fleiri blóðflögur en venjulegur blóðvökvi.

 

Hvernig virkar PRF?

Blóðflögur innihalda vaxtarþætti, boðefni (cytokín) og prótein sem gegna lykilhlutverki í viðgerð og endurnýjun mjúkvefja og beina. Þessi efni:

  • Örva frumuvinnslu og kollagenmyndun
  • Styðja við sáragróanda og endurnýjun húðar
  • Draga úr bólgum og roða
  • Bæta áferð, teygjanleika og heildarútlit húðar

PRF er meðal annars notað til að:

  • Minnka fínar línur og hrukkur
  • Draga úr baugum undir augum
  • Bæta húðáferð og húðlit Gefa húðinni ferskara og heilbrigðara útlit

Þar sem efnið kemur alfarið úr þér sjálfri/sjálfum er meðferðin 100% náttúruleg, án aukaefna eða tilbúinna efna.

Verðskrá

Verk

Verð/verðbil

PRF í hár eitt skipti

65.000 kr

PRF í hár, þrjú skipti

165.750 kr

PRF örnálameðferð(microneedeling), í andlit

49.500 kr

PRF örnálameðferð(microneedeling) í andlit, þrjú skipti

126.225 kr

PRF vökvi undirhúð og PRF örnálameðferð(microneedeling)

89.500 kr